Fréttir
Fréttir og greinar
Nýjustu fréttir, rannsóknagreinar og tilkynningar.
Fréttir
Öflug þátttaka ÍSOR á World Geothermal Congress í Calgary 2026
ÍSOR tók virkan þátt í World Geothermal Congress 2026 sem haldin var í Calgary í Kanada dagana 8.–12. júní. Ráðstefnan er stærsti alþjóðlegi vettvangur fagfólks á sviði jarðhita og jarðvísinda og sækja hana helstu sérfræðingar og fulltrúar fyrirtækja og stofnana víðs vegar að úr heiminum. Alls…
24. júní 2026 · ÍSOR · 1 mín. lestur
Fréttir og greinar

Fréttir
ÍSOR kortleggur sprungur og bergganga á Patreksfirði með flygildi
Starfsmenn ÍSOR voru við segulmælingar með flygildi á Patreksfirði og næsta nágrenni fyrir helgi. Markmið mælinganna var að fá skýrari mynd af legu bergganga og sprungna á svæðinu, til viðbótar við það litla sem kortlagt hefur verið á yfirborði á þessu svæði.
26. maí 2026 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
ÍSOR þátttakandi á GeoTHERM expo & congress í Offenburg þar sem lághiti var í brennidepli
Jarðfræðingarnir Auður Agla Óladóttir og Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir voru fulltrúar ÍSOR á ráðstefnunni GeoTHERM expo & congress sem haldin var í Offenburg í Þýskalandi í lok febrúar. Um er að ræða einn helsta viðburð Evrópu fyrir fagfólk í jarðhita og sannkallaðan vettvang fyrir miðlun þekkingar…
5. mars 2026 · ÍSOR · 2 mín. lestur

Fréttir
Alþjóðadagur kvenna í vísindum – 11. febrúar 2026
Í dag, 11. febrúar er Alþjóðadagur kvenna og stúlkna í vísindum. Af því tilefni viljum við hjá ÍSOR varpa ljósi á þær frábæru konur sem starfa meðal okkar og leggja sitt af mörkum til rannsókna og gegna lykilhlutverki í vöktun og sjálfbærri nýtingu á sviði jarðvísinda og náttúruauðlinda.
11. febrúar 2026 · ÍSOR · 2 mín. lestur

Fréttir
Alexandra K. Hafsteinsdóttir hlýtur Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands og Hugo Alejandro Arteaga Vivas sérstaka viðurkenningu fyrir verkefni unnin hjá ÍSOR
Alexandra K. Hafsteinsdóttir, nemandi í meistaranámi í jarðfræði við Háskóla Íslands og starfsmaður ÍSOR, hlaut Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefni sitt Kortlagning grunnvatns á Reykjanesskaga. Jafnframt hlaut Hugo Alejandro Arteaga Vivas, nemandi í meistaranámi í jarðeðlisfræði við…
21. janúar 2026 · ÍSOR · 4 mín. lestur

Fréttir
Aðkoma ÍSOR að 10 MW gufuaflsvirkjun styður við orkuskipti á Dóminíku í Karíbahafi
ÍSOR og HD ehf. hafa undirritað samning við DGDC Ltd. (Dominica Geothermal Development Company Ltd.) um eftirlit með gangsetningu og rekstri 10 MW gufuaflsvirkjunar á Dóminíku í Karíbahafi. Samningurinn tekur jafnframt til samantektar og úrvinnslu gagna um viðbrögð jarðhitakerfisins við vinnslu…
9. janúar 2026 · ÍSOR · 2 mín. lestur

Fréttir
Nýr Háhitadjúpsýnataki – framfaraskref með nýsköpun í rannsóknum og nýtingu jarðhita
ÍSOR hefur frá stofnun lagt ríka áherslu á rannsóknir, nýsköpun og þróun hagkvæmra lausna til að mæta áskorunum tengdum nýtingu jarðhita.
6. janúar 2026 · ÍSOR · 2 mín. lestur

Fréttir
ÍSOR á EMODnet Open Conference 2025
Mikilvægt fagsvið sem ÍSOR sinnir eru jarðvísindalegar hafsbotnsrannsóknir ÍSOR, en þær nýtast meðal annars til rannsókna á náttúruauðlindum og til stuðnings verndunar hafsbotnssvæða. ÍSOR sinnir þjónustu og rannsóknum fyrir stjórnvöld og stofnanir ásamt ýmsum innlendum og erlendum aðilum og eru…
27. nóvember 2025 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Opinn fundur þann 5 nóvember á vegum GRÓ þekkingarmiðstöðvar um þróunarsamvinnu, Jarðhitaskólans og utanríkisráðuneytisins í samvinnu við Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands.
Á þessum opna fundi munu nemendur Jarðhitaskólans miðla reynslu sinni og sýn á jarðhitafræðslu og jarðhitanýtingu til sjálfbærrar þróunar í orkumálum.
4. nóvember 2025 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Segulmælingar með dróna
Í ár fjárfesti ÍSOR í nýjum dróna og segulmæli sem býður upp á enn meiri framfarir. Fyrstu mælingar með nýja búnaðinum fóru fram í Eyjafirði í síðustu viku, þar sem mælt var á jarðhitasvæðunum við Botn og við Hjalteyri. Flognir voru 380 km á tveimur dögum og um 6 km² kortlagðir, en flogið var í 25…
22. október 2025 · ÍSOR · 2 mín. lestur

Fréttir
ÍSOR og Arctic Green Engineering Services (AGEN) hefja samstarf
ÍSOR, sem auk fjölþættrar starfsemi á Íslandi veitir vísindalega og tæknilega ráðgjöf á sviði jarðvísinda á alþjóðamarkaði og AGEN (Arctic Green Engineering Services) alþjóðlegt ráðgjafarfyrirtæki með aðsetur í Ungverjalandi á sviði jarðvísinda, verkfræði, tæknilegrar þjónustu og nýsköpunar…
30. september 2025 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Uppfært jarðvarmamat. Einstök skilyrði á Íslandi til jarðhitanýtingar.
Skýrslan “Jarðvarmamat. Mat á varmaforða, varmaflæði og framtíð jarðhitanýtingar á Íslandi” er komin út og kynnti Steinunn Hauksdóttir, forstöðumaður auðlindarannsókna og alþjóðasamskipta hjá ÍSOR helstu niðurstöður á blaðamannafundi hjá URN.
25. september 2025 · ÍSOR · 2 mín. lestur

Fréttir
Heitt vatn fannst í nýrri borholu á Patreksfirði
Undanfarnar vikur hefur Orkubú Vestjarða staðið fyrir borun á nýrri vinnsluholu á Patreksfirði, til viðbótar þeirri sem boruð var haustið 2024. Það er jarðborinn Freyja frá Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða sem notaður er í verkið en sérfræðingar ÍSOR staðsettu borholuna og hafa stýrt rannsóknum á…
28. ágúst 2025 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
EMODnet ráðstefna og vinnustofa um jarðfræði hafsbotns haldin á Íslandi 3.-6. júní 2025
Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR), í samstarfi við Háskóla Íslands og Jarðfræðafélag Íslands, mun halda ráðstefnu og vinnufund EMODnet-Geology verkefnisins, í fyrsta sinn á Íslandi. Í fyrstu viku júnímánaðar munu 55 jarðvísindamenn frá 26 evrópskum jarðfræðistofnunum og rannsóknaraðilum koma saman…
2. júní 2025 · ÍSOR · 3 mín. lestur

Fréttir
Um vatnsvernd og skógrækt
Um vatnsvernd og skógrækt í Heiðmörk
27. maí 2025 · ÍSOR · 3 mín. lestur

Fréttir
Landgrunnsréttindi Íslands staðfest á Reykjaneshrygg
Þann 14. mars samþykkti landgrunnsnefnd Sameinuðu þjóðanna tillögur að útmörkum landgrunns Íslands á vestan-, sunnan- og suðaustanverðum Reykjaneshrygg. Þar með lauk löngu ferli að þessu marki, en greinargerð Íslands fyrir þetta svæði, auk svæðis austan við Ísland í Ægisdjúpi (Smugunni), var fyrst…
21. mars 2025 · ÍSOR · 3 mín. lestur

Fréttir
Skriðtengin komin í holu!
Svokölluð skriðtengi (e. Flexible Couplings) hafa verið í þróun hjá ÍSOR síðastliðin tíu ár en þau eru ný lausn sem ætlað er leysa vandamál sem verður í borholum þegar þær hitna en þá geta fóðringar í holunum skemmst vegna varmaþenslu. Á dögunum náðist stór áfangi í verkefninu þegar skriðtengin…
26. febrúar 2025 · ÍSOR · 3 mín. lestur

Fréttir
ÍSOR tilnefnt til evrópskra nýsköpunarverðlauna
Skriðtengi ÍSOR (Flexible Coupling) fékk tilnefningu Evrópska Jarðhitaráðsins (European Geothermal Energy Council) til nýsköpunarverðlauna Ruggero Bertani EGIAward 2025. Alls eru fimm fyrirtæki tilnefnd og verður vinningshafinn tilkynntur á ráðstefnunni GeoTHERM sem haldin er í Offenburg…
3. febrúar 2025 · ÍSOR · 2 mín. lestur

Fréttir
ÍSORÐ – 8. viðburðurinn sem ÍSOR býður upp á.
Hægt er að sjá upptöku frá fundinum Hér
9. desember 2024 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Upplýsingafundar um góðan árangur af jarðhitaleit
Í vikunni boðaði Guðlaugur Þ. Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra, til upplýsingafundar um góðan árangur af jarðhitaleit á undanförnum mánuðum og misserum. Þar kynnti Árni Magnússon, forstjóri ÍSOR, m.a. niðurstöður rannsókna á möguleikum nýtingar lághita á Reykjanesi, sem ráðist var í…
12. september 2024 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Ráðstefna og samstarf Íslenskra orkurannsókna og Háskólans á Akureyri við vísindafólk úr leiðangri 396 innan International Ocean Discovery Program.
Íslenskar orkurannsóknir og Háskólinn á Akureyri héldu í júní ráðstefnu um rannsóknir sínar með vísindamönnum úr leiðangri 396 innan The International Ocean Discovery Program (IODP) ásamt tveggja daga vettvangsferð á Norðausturlandi. Ráðstefnan fór fram dagana 17-21. júní í Háskólanum á Akureyri.
2. september 2024 · ÍSOR · 2 mín. lestur

Fréttir
Forstöðumaður Jarðhitaskólans
Bjarni er jarðhitasérfræðingur með yfir 25 ára reynslu og hefur starfað hjá ÍSOR frá stofnun þess. Þar á undan var hann á Rannsóknarsviði Orkustofnunar. Hann hefur einnig unnið á öðrum sviðum…
6. ágúst 2024 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
ÍSORÐ – 7. viðburðurinn sem ÍSOR býður upp á.
Hægt er að sjá upptöku frá fundinum HÉR
25. júní 2024 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Mikill áhugi á samstarfi við Íslendinga
Í nýliðinni viku stóð Íslandsstofa, í samstarfi við sendiráðið í Washington og fylkisstjórnina í Colorado, fyrir velheppnaðri ráðstefnu um mögulegt samstarf á sviði grænnar orku.
24. júní 2024 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
ÍSOR hreppir Nýsköpunarverðlaun IGC
Vel heppnaðri ráðstefnu íslenska orkuklasans, Iceland Geothermal Conference, lauk í Hörpu í gær. Alls voru nærri 600 þátttakendur á ráðstefnunni, frá 54 þjóðlöndum.
31. maí 2024 · ÍSOR · 2 mín. lestur

Fréttir
Gæti haft gríðarlega þýðingu fyrir Ísafjörð
Að ógleymdum skilningi og stuðningi stjórnvalda við áframhaldandi nýtingu þeirrar dýrmætu auðlindar sem jarðhitinn er fyrir íslenska þjóð.
31. maí 2024 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Námskeið Jarðhitaskólans og jarðhitafyrirtækisins LaGeo í El Salvador
Vel heppnuðu tveggja vikna námskeiði Jarðhitaskólans og jarðhitafyrirtækisins LaGeo í El Salvador lauk á sunnudaginn. Námskeiðið var haldið í höfuðstöðvum LaGeo í Santa Tecla við höfuðborgina San Salvador og það sótt af gestum úr jarðhitaiðnaðinum víðs vegar um mið- og suður-Ameríku auk starfsfólks…
13. febrúar 2024 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Þessa dagana vinnur ÍSOR að rýni á gögnum frá tveimur jarðhitasvæðum í El Salvador
Þessa dagana vinnur ÍSOR að rýni á gögnum frá tveimur jarðhitasvæðum í El Salvador. Þetta eru verkefni í Austur Ahuachapan og í Conchagua. Verkefnið er unnið fyrir Þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins og er í samvinnu við Alþjóðabankann.
25. janúar 2024 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Eldgos á Svartsengis- Sundhnúksgosreininni eftir ísöld
Í ljósi síðustu atburða á Reykjanesskaga er tilefni til að rifja upp það sem vitað er um gossögu Sundhnúksgosreinarinnar. Svartsengiskerfið er um 30 km langt og 6-7 km breitt. Eftir að jökla ísaldar leysti fyrir um fimmtán þúsund árum hefur gosvirknin í kerfinu einskorðast við Eldvarpa-gosreinina…
18. janúar 2024 · ÍSOR · 4 mín. lestur

Fréttir
Skoða hvort kvikugas valdi landrisi
„Í okkar huga skiptir verulegu máli að vita, ef hægt er, hvort kvika sé að safnast fyrir beint undir Svartsengi, eða hvort þar sé mögulega að safnast fyrir kvikugas frá kvikuuppstreymi lengra í burtu, mögulega frá sjálfstæðu kvikuuppstreymi undir Sundhnúkagígaröðinni.
9. janúar 2024 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
ÍSORÐ – 6. viðburðurinn sem ÍSOR býður upp á.
Að þessu sinni verður fjallað um hvernig starfsemi ÍSOR samrýmist heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Með því að vinna að heimsmarkmiðunum leggur ÍSOR meðal annars sín lóð á vogarskálarnar til að Ísland nái fram markmiðum sínum í loftslagsmálum.
12. desember 2023 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Neðansjávarhraun og gígar við Grindavík
Jarðskjálftar og landris í grennd við fjallið Þorbjörn upp af Grindavík hafa sett menn í viðbragðsstöðu gagnvart eldsumbrotum þar í grennd. Af þeim sökum hafa menn líka rýnt í jarðfræðileg gögn og gamlar frásagnir af eldgosum á þessum slóðum.
12. nóvember 2023 · ÍSOR · 2 mín. lestur

Fréttir
Viðurkenning Jafnvægisvogarinnar
Við hjá ÍSOR erum stoltir handhafar viðurkenningar Jafnvægisvogarinnar sem afhent var við hátíðlega athöfn í beinni útsendingu á vefsíðu RÚV í gær.
13. október 2023 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
ÍSORÐ – fimmti viðburðurinn sem ÍSOR býður upp á.
Við hjá ÍSOR viljum bjóða ykkur að taka þátt í ÍSORÐI, miðvikudaginn 27. september
25. september 2023 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Jarðrænar auðlindir
Jarðrænar auðlindir eru meðal mikilvægustu auðlinda mannkyns en Ísland er mikill eftirbátur nágrannalandanna þegar kemur að kortlagningu þeirra. Um þetta var fjallað í fréttum Stöðvar 2 í vikunni þar sem Árni Magnússon, forstjóri ÍSOR, var til svara.
21. september 2023 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Sendinefnd Íslands kynnti endurskoðaða greinargerð fyrir landgrunnsnefnd Sameinuðu þjóðanna
Fulltúar ÍSOR tóku nýlega þátt í kynningu sendinefndar Íslands fyrir undirnefnd landsgrunnsnefndar Sameinuðu þjóðanna í New York um hafsbotnsréttindi á Reykjaneshrygg.
12. ágúst 2023 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
ÍSOR haslar sér völl í jarðvarma á Indlandi
„Við höfum verið að vinna að verkefni með stóru indversku olíufyrirtæki sem heitir Oil and Natural Gas Corporation, ONGC, sem er ríkisolíufélag á Indlandi og sinnt ráðgjöf sem miðar að því að staðsetja og hanna borholur, ásamt því að vera með eftirlit með borun og þess háttar,“…
11. ágúst 2023 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Eldgos við Litla-Hrút og jarðskjálftavöktun á ÍSOR
ÍSOR hefur unnið með Tékknesku vísindaakademíunni í Prag frá árinu 2013, en akademían hefur rekið 17 jarðskjálftamæla á Reykjanesskaga í samvinnu við ÍSOR. Jarðskjálftamælanetið, sem kallast REYKJANET, þekur skagann nokkuð vel allt að Geitafelli í austri, sjá græna þríhyrninga á mynd. Þessir mælar…
11. júlí 2023 · ÍSOR · 2 mín. lestur

Fréttir
Verkefni ÍSOR og samstarfsaðila í Indlandi
Eins og hefur áður komið fram, hefur ÍSOR ásamt samstarfsaðilunum Verkís og Techon India, verið að vinna að verkefnum undanfarið í Indlandi ( https://isor.is/isor-og-verkis-toku-thatt-i-ferd-utanrikisraduneytisins-til-indlands/ ). Einn af viðskiptavinum ÍSOR á Indlandi er eitt af stærstu…
10. júlí 2023 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
ÍSOR áfram í óbreyttri mynd
Undanfarið ár hefur farið fram skoðun á því hvort og þá með hvaða hætti, mætti sameina tilteknar undirstofnanir Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins.
4. júlí 2023 · ÍSOR · 2 mín. lestur

Fréttir
ÍSOR fagnar 20 ára afmæli
Þann 1. júlí 2023, fagnaði ÍSOR 20 ára afmæli. Það var á þeim degi árið 2003 sem ný lög tóku gildi um Íslenskar orkurannsóknir og ný stofnun tók við verkefnum sem í áratugi höfðu verið á hendi Orkustofnunar og frá 1997 Rannsóknasviðs hennar. ÍSOR byggir því á traustum grunni sem lagður var af hópi…
3. júlí 2023 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Umfangsmiklar rannsóknir á jarðskorpu Íslands og jarðhitaleit
Nú í ágúst hefjast umfangsmiklar rannsóknir á jarðskorpunni undir Íslandi. Til landsins kemur hópur frá Jarðvísandaháskólanum í Wuhan í Kína (CUG). Gera á mælingar á eðlisviðnámi/rafleiðni djúpt í jörðu undir Norðausturlandi (grænir pinnar á meðfylgjandi mynd) með svokölluðum MT-mælingum og tekur…
28. júní 2023 · ÍSOR · 2 mín. lestur

Fréttir
Vindorka á hafi
Skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins um vindorku á hafi (2023): 2023_URN_Vindorka_a_hafi.pdf
13. júní 2023 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Tæknimanneskja í borholumælingum
Í ljósi vaxandi umsvifa leitar ÍSOR að metnaðarfullum einstaklingi í starf tæknimanneskju í borholumælingum.
26. maí 2023 · ÍSOR · 2 mín. lestur

Fréttir
ÍSORÐ – fjórði viðburðurinn sem ÍSOR býður upp á.
Það er komið að næsta ÍSORÐ-i, röð viðburða sem ÍSOR hrinti af stað 2022.
26. maí 2023 · ÍSOR · 2 mín. lestur

Fréttir
Jarðhitavirkni undir hringvegi
Vart hefur orðið við aukna jarðhitavirkni undir þjóðveginum í Hveradalabrekku við Skíðaskálann í Hveradölum. Vegna sérþekkingar og reynslu ÍSOR á kortlagningu jarðhita og reynslu af umhverfiseftirliti vorum við fengin til ráðgjafar fyrir Vegagerðina sem fylgist nú grannt með ástandi vegarins.
15. maí 2023 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Úttekt ÍSOR á stöðu hitaveitna
Á fagþingi Samorku sem haldið er á Selfossi kynntu sérfræðingar ÍSOR niðurstöður skýrslu sem unnin var fyrir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið. Skýrslan ber heitið Hitaveitur á Íslandi – úttekt á stöðu hitaveitna og nýtingar jarðhitavatns til húshitunar. Skýrslan var fyrst kynnt á…
5. maí 2023 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
ÍSOR leitar að sérfræðingi í forðafræði jarðhita
Sérfræðingur í forðafræði jarðhita
31. mars 2023 · ÍSOR · 2 mín. lestur

Fréttir
Rannsóknir eru forsenda sjálfbærrar nýtingar jarðhita
30. mars 2023 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
ÍSOR og Verkís tóku þátt í ferð utanríkisráðuneytisins til Indlands
ÍSOR og Verkís tóku þátt í ferð til Indlands 1.-5. mars sl. Utanríkisráðuneytið skipulagði ferðina ásamt sendiráði Íslands í Delhi. Haukur Þór Haraldsson, viðskiptaþróunarstjóri, tók þátt í ferðinni fyrir hönd Verkís og Daði Þorbjörnsson fyrir hönd ÍSOR. Auk þess að hitta yfirvöld orkumála á…
29. mars 2023 · ÍSOR · 2 mín. lestur

Fréttir
Grein í Bloomberg um jarðhita
Bloomberg fjallar í grein sem kemur út í dag, um jarðhita á Íslandi og hversu stórt hlutverk hann hefur skipað í framþróun lands og þjóðar. Sömuleiðis um það hvað aðrar þjóðir geta lært af Íslendingum um nýtingu þeirrar verðmætu auðlindar sem jarðhitinn er. M.a. er rætt við Steinþór Níelsson…
1. mars 2023 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Sumarstarf á sviði verkfræði 2023
Við leitum að metnaðarfullum háskólanema í starf á sviði verkfræði í sumar. Starfið felur í sér vinnu í fjölbreyttum verkefnum tengdum jarðhita. Umsækjendur skulu hafa lokið a.m.k. tveggja ára háskólanámi í verkfræði.
22. febrúar 2023 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Sumarstörf á sviði jarðfræði 2023
Við leitum að metnaðarfullum háskólanemum í störf á sviði jarðfræði í sumar. Helstu verkefni eru jarðvísindalegar rannsóknir og úrvinnsla gagna. Verkefni geta falið í sér ýmsar mælingar og rannsóknir úti í mörkinni og þátttöku í faglegum rannsóknarverkefnum. Umsækjendur skulu hafa lokið a.m.k…
22. febrúar 2023 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Sameiningar stofnana: Tryggja á að ÍSOR geti áfram veitt orkuiðnaðinum og opinberum aðilum þjónustu og ráðgjöf á sínu sviði.
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, kynnti á fundi ríkisstjórnar í gær þau áform að sameina tíu af stofnunum ráðuneytisins í þrjár öflugar stofnanir — Náttúruverndar- og minjastofnun, Náttúruvísindastofnun og Loftslagsstofnun. Efla á stofnanir ráðuneytisins til að…
1. febrúar 2023 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
ÍSORÐ – þriðji viðburðurinn sem ÍSOR býður upp á.
Sérfræðingar ÍSOR fjalla um einstök viðfangsefni er snúa að orku og auðlindum jarðar. Viðburðirnir eru sendir út á netinu og öllum er boðin þátttaka, almenningi, fjölmiðlum og fræðasamfélagi.
2. desember 2022 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
ÍSOR og Dóminíka
ÍSOR hefur verið að vinna að áhugaverðum jarðhitaverkefnum í Karbíska hafinu, þar á meðal á Dóminíku, allt frá árinu 2011. Nú eru aftur komin af stað borun á þessari paradísareyju, þar sem Jarðboranir eru nú að bora tvær nýjar holur. ÍSOR og Mannvit eru ráðgjafar Dóminískra stjórnvalda í tengslum…
21. nóvember 2022 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Að auka orkuöryggi til framtíðar
Eftirfarandi grein birtist í Fréttablaðinu þann 17 nóvember 2022
17. nóvember 2022 · ÍSOR · 6 mín. lestur

Fréttir
Laus störf hjá ÍSOR í ljósi vaxandi umsvifa
Í ljósi vaxandi umsvifa leitar ÍSOR að metnaðarfullum einstaklingum til að bætast í hópinn. Einkunnarorð stefnu ÍSOR er sjálfbærni í verki og er kjarninn í stefnu og starfsemi ÍSOR að veita ráðgjöf um sjálfbæra nýtingu jarðrænna auðlinda og styðja við stefnu stjórnvalda á sviði loftslagsmála.
14. nóvember 2022 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Forseti Íslands í heimsókn hjá Cornell háskólanum í Íþöku, New York fylki, ásamt GRP Iceland, ÍSOR og Íslenska orkuklasanum.
Cornell háskólinn hefur lengi hefur verið meðal fremstu háskóla í Bandaríkjunum og hefur verið í samstarfi við GRP Iceland (Geothermal Resource Park), Íslenska Orkuklasann, Háskólann í Reykjavík og íslensk stjórnvöld, og hefur unnið að ýmsum verkefnum er tengjast endurnýjanlegum orkugjöfum og…
11. nóvember 2022 · ÍSOR · 2 mín. lestur

Fréttir
Endurnýjun aðildar að samtökum 37 jarðfræðistofnana í Evrópu, EuroGeoSurveys.
ÍSOR hefur endurnýjað aðild sína að samtökum 37 jarðfræðistofnana í Evrópu, EuroGeoSurveys, og styrkir þannig stöðu Íslands í samfélagi evrópskra rannsóknaraðila í jarðvísindum. Auk þess er ÍSOR aðili að EERA-European Enegery Research Alliance, https://www.eera-set.eu/ samtök rannsóknaraðila í…
31. október 2022 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Frá Kanarí til Kasmír
Í grein Morgunblaðsins í dag (27 nóvember 2022) er rætt við Bjarna Richter, jarðfræðing og sviðsstjóra viðskiptaþróunar og markaðsmála hjá ÍSOR um erlend verkefni sem ÍSOR vinnur að. Þar er m.a. fjallað um verkefni á Kanaríeyjum og í Kasmír á Indlandi. Verkefnið á Kanarí felur í sér að “…skoðuð eru…
27. október 2022 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
ÍSOR tekur þátt í jarðhitarannsóknum á Kanarí eyjum
ÍSOR skrifaði nýlega undir samning við spænska orku- og olíufyrirtækið Repsol S.A um jarðhitaúttekt á þremur af Kanaríeyjunum, þ.e. La Palma, Tenerife og Gran Canaria. Töluvert af jarðvísindalegum rannsóknum hafa verið gerðar á eyjunum þremur á undanförnum árum. Jarðfræði eyjanna er vel kortlögð…
10. október 2022 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
ÍSORÐ 27. september – Fundaröð ÍSOR um orku og auðlindir jarðar.
ÍSORÐ – Fundaröð ÍSOR um orku og auðlindir jarðar.
23. september 2022 · ÍSOR · 2 mín. lestur

Fréttir
Vísindagreinar eftir íslenska jarðvísindamenn í tímaritinu Nature
Í tímaritinu Nature birtust á dögunum tvær greinar eftir íslenskt jarðvísindafólk sem báðar fjalla um umbrotin í Fagradalsfjalli árið 2021. Önnur greinin er jarðeðlisfræðileg og var ÍSOR þátttakandi í henni, en hin er jarðefnafræðileg. Afar sjaldgæft er að tvær vísindagreinar eftir íslenska…
19. september 2022 · ÍSOR · 3 mín. lestur

Fréttir
Umhverfiseftirlit fyrir Landsvirkjun
Undir lok ágústmánaðar fóru þrír starfsmenn ÍSOR norður í land til að sinna umhverfiseftirliti fyrir Landsvirkjun á nýtingarsvæðum þeirra í Kröflu, Námafjalli og á Þeistareykjum. Síðastliðinn áratug hefur ÍSOR sinnt því verkefni að fylgjast með breytingum á þessum jarðhitasvæðum. Fylgst er með…
14. september 2022 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Nýrri optískri holusjá bætt við borholumælasafn ÍSOR
Holusjáin hefur verið í innleiðingu skv. vottuðu verklagi ÍSOR (ISO9001:2015) og við það tækifæri voru tvær borholur Vegagerðarinnar myndaðar með góðum árangri.
12. september 2022 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Borholumælingar á Terceira-eyju
Azoreyjar eru níu eyja eldfjallaklasi á miðju Atlantshafi, beint vestur af Portúgal. Þrátt fyrir siglingar hinna og þessa snillinga frá örófi alda þá telst eyjaklasinn ekki hafa fundist fyrr en á…
12. september 2022 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Segulmælingar með dróna
7. september 2022 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
ÍSOR hefur gengið frá samningi við ONGC
ÍSOR hefur gengið frá samningi við ONGC (Oil and Natural Gas Company – www.ongcindia.com), eitt stærsta olíufyrirtæki Indlands, vegna undirbúnings jarðvarmavirkjunar í Puga dal í Ladakh, í Kasmír héraði.
5. ágúst 2022 · ÍSOR · 2 mín. lestur

Fréttir
Eldgos er hafið að nýju – Fagradalsfjallseldar?
Magnús Á. Sigurgeirsson jarðfræðingur á ÍSOR – Iceland GeoSurvey hefur í áratugi rannsakað gossöguna á Reykjanesskaga. Hér lýsir hann því hvernig hún gefur okkur betri skilning á því sem líklega er framundan – Fagradalsfjallseldar.
4. ágúst 2022 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Orka og auðlindir jarðar – fyrirlestur
Í dag hratt ÍSOR af stað röð viðburða undir heitinu ÍSORÐ.
29. júní 2022 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Umfjöllun um jarðhita í tímaritinu Energy Global
Í nýjustu útgáfu tímaritsins Energy Global er mikil umfjöllun um jarðhita og hvert hlutverk hans gæti orðið í þeirri viðleitni að auka hlutdeild endurnýjanlegrar orku m.t.t. loftslagsmála. Enn fremur í ljósi mikilvægi þess að Evrópa auki sjálfstæði sitt í orkumálum ekki síst í ljósi innrásar Rússa…
27. júní 2022 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Orka og auðlindir jarðar – ÍSORÐ
Þriðjudaginn 28 júní hrindir ÍSOR af stað röð viðburða á sviðum orku og auðlinda jarðar þar sem fjallað verður um þau málefni af sjónarhóli stofnunarinnar.
24. júní 2022 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Starf á efnarannsóknarstofu
Í ljósi vaxandi umsvifa leitar ÍSOR nú að metnaðargjörnum einstaklingi í starf á efnarannsóknarstofu. Efnarannsóknarstofan sér um greiningar á vökva- og gassýnum, einkum í tengslum við grunnvatns- og jarðhitarannsóknir.
23. júní 2022 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Heimsókn frá Indónesíu
ÍSOR hefur á undanförnum árum tekið þátt í nokkrum verkefnum á sviði jarðhita í Indónesíu, í samstarfi við önnur íslensk fyrirtæki, s.s. verkfræðistofurnar Mannvit og Verkís, borverktakann North Tech Energy o.fl.
20. júní 2022 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Opið hús í nýjum höfuðstöðvum ÍSOR að Urðarhvarfi 8
Opið hús í nýjum höfuðstöðvum ÍSOR að Urðarhvarfi 8
20. júní 2022 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Ársyfirlit ÍSOR
Ársyfirlit ÍSOR er komið út. Það er nú í fyrsta sinn aðeins birt á heimasíðu ÍSOR.
15. júní 2022 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Boranir á Dóminíku
Dóminíka er eyja í Karíbahafi sem hefur þurft að reiða sig innflutt jarðefnaeldsneyti til þess að sinna sínum orkuþörfum.
14. júní 2022 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Uppbygging hafsbotnsskorpu og rekbelti
Anett Blischke, strúktúrjarðfræðingur og sérfræðingur í hafsbotnsrannsóknum hjá ÍSOR og samstarfsfólk hennar eru höfundar nýlegrar vísindagreinar um uppbyggingu og reksögu hafsvæðisins norðan Íslands og vestan Jan Mayen. Greinin, sem er afrakstur samstarfsverkefnis ÍSOR, Orkustofnunar…
24. maí 2022 · ÍSOR · 2 mín. lestur

Fréttir
Carbfix og ÍSOR undirrita samkomulag um kolefnisförgun
Carbfix og ÍSOR undirrituðu í dag samkomulag um frekari samvinnu á sviði kolefnisförgunar, m.a. á erlendri grundu, en fyrirtækin hafa á undanförnum árum átt gott samstarf um hana á Íslandi.
5. maí 2022 · ÍSOR · 2 mín. lestur

Fréttir
Forboðar eldossins í Fagradalsfjalli
Þann 2. maí 2022 birtist grein í einu virtasta jarðvísindatímariti heims, Nature Geoscience, um niðurstöður rannsókna á umbrotahrinu sem hófst í Svartsengi snemma árs 2020 og var forboði eldgossins í Fagradalsfjalli. Greinin, sem Ólafur G. Flóvenz, fyrrverandi forstjóri ÍSOR, er í forsvari fyrir…
3. maí 2022 · ÍSOR · 4 mín. lestur

Fréttir
Jarðfræði- og jarðvárkortlagningu strandsvæða í Seyðisfirði og Norðfirði
Á síðasta ári hlaut ÍSOR – Iceland GeoSurvey styrk hjá Rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar til að vinna að jarðfræði- og jarðvárkortlagningu strandsvæða í Seyðisfirði og Norðfirði. Meginmarkmið verkefnisins er að varpa ljósi stærð og umfang neðansjávarskriða, ásamt því að kortleggja og bæta þekkingu á…
19. apríl 2022 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Heimsókn ráðherra
Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis- orku og loftslagsráðherra ásamt föruneyti kom á dögunum í heimsókn í nýtt húsnæði ÍSOR að Urðarhvarfi 8 í Kópavogi. Ásamt því að skoða aðstöðu höfuðstöðva ÍSOR, rannsóknarstofu og húsakynni GRÓ jarðhitaskóla var spjallað við starfsmenn og stjórnendur um umhverfis…
19. mars 2022 · ÍSOR · 2 mín. lestur

Fréttir
GEOENVI – Mat og meðhöndlun umhverfisáhrifa jarðhitanýtingar í Evrópu
ÍSOR tók þátt í verkefninu GEOENVI, sem unnið var undir Horizon 2020 rannsóknaráætlunar Evrópusambandsins á árunum 2018-2021. Verkefnið var leitt af EGEC (European Geothermal Energy Council) en aðrir þátttakendur komu frá frá Belgíu, Ítalíu, Frakklandi, Ungverjalandi og Tyrklandi, auk Íslands…
17. febrúar 2022 · ÍSOR · 2 mín. lestur

Fréttir
Nýtt jarðfræðikort af Vesturgosbelti landsins
Nýtt jarðfræðikort af Vesturgosbelti landsins í mælikvarðanum 1:100 000 hefur verið gefið út. Það nær yfir hraunasvæðin norðan Þingvallavatns og allt norður yfir Langjökul. Til vesturs teygir það sig yfir Arnarvatnsheiði og til austurs yfir Hreppafjöll. Hér má nálgast pdf-útgáfu af kortinu sem mun…
14. febrúar 2022 · ÍSOR · 2 mín. lestur

Fréttir
ÍSOR flytur í Urðarhvarf 8
ÍSOR, Íslenskar orkurannsóknir, flytur nú starfsemi sína í Kópavog og hefst regluleg starfsemi þar mánudaginn 17. janúar.
11. janúar 2022 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Fréttir
Grunnrannsóknir eru forsenda hagnýtra rannsókna og sjálfbærrar auðlindanýtingar á hafsbotni
Á ÍSOR er einstök fagþekking og reynsla sérfræðinga á jarðvísindalegri úrvinnslu rannsóknargagna á hafsbotninum umhverfis Ísland. Samstarf stofnana og ráðuneyta á undanförnum árum hefur skipt sköpum svo að rannsóknargögn sem aflað er af erlendum og innlendum aðilum nýtist til að rannsaka…
19. ágúst 2021 · ÍSOR · 2 mín. lestur

Fréttir
Gosskeið á Reykjanesskaga fyrir 1900-2500 árum – yfirlit
Næstsíðasta gosskeið á Reykjanesskaga sem stóð yfir fyrir 1900-2500 árum var ekki ýkja frábrugðið því síðasta sem stóð yfir frá 800 til 1240 e.Kr. Helsti munurinn felst í því að þá varð Hengilskerfið virkt en á nútíma hefur gosvirkni þar verið minni en í kerfunum í vestri. Meðfylgjandi kort sýnir…
20. júní 2021 · ÍSOR · 3 mín. lestur

Fréttir
Hvar og hvernig myndast jarðskjálftar?
Hvar og hvernig myndast jarðskjálftar? Hvaða áhrif hafa jarðhitanýting, vökvastreymi og jarðskorpuhreyfingar á jarðskjálftavirkni? Þetta eru spurningar sem m.a. er vonast til að hægt verði að svara í rannsóknarverkefni sem nýlega fór af stað hjá ÍSOR. Niðurstöður verkefnisins verða m.a. notaðar til…
17. maí 2021 · ÍSOR · 5 mín. lestur
Ekki missa af neinu
Skráðu þig á fréttabréfið og fáðu nýjustu greinar í pósthólfið.
