Hoppa í aðalefni
ÍSOR — Iceland GeoSurveyÍSOR — Iceland GeoSurvey

Fréttir

Opið hús í nýjum höfuðstöðvum ÍSOR að Urðarhvarfi 8

ÍSOR · 20. júní 2022 · 1 mín. lestur

Opið hús í nýjum höfuðstöðvum ÍSOR að Urðarhvarfi 8

Opið hús í nýjum höfuðstöðvum ÍSOR að Urðarhvarfi 8

Opið hús í nýjum höfuðstöðvum ÍSOR að Urðarhvarfi 8

Í stað hefðbundins ársfundar í ár bauð ÍSOR góðum gestum í opið hús í nýjar

höfuðstöðvar að Urðarhvarfi 8 í Kópavogi. Stjórnarformaður ÍSOR, Þórdís Ingadóttir, og forstjóri, Árni Magnússon, kynntu helstu lykiltölur og verkefni síðasta árs fyrir ráðherra umhverfis-, orku- og loftslagsmála, Guðlaugi Þór Þórðarsyni. https://isor.is/um-isor/arsyfirlit/

Rætt var um jákvæða þróun í rekstri og mikilvægi þekkingar ÍSOR fyrir vegferð íslenskra stjórnvalda í orkumálum til framtíðar. Af þessu tilefni var opnaður nýr vefur ÍSOR ( www.isor.is ) og þar má m.a. finna tvær nýjar vefsjár:

Jarðfræðikort og náttúrufar https://arcgisserver.isor.is/

Hafsbotnsrannsóknir https://arcgisserver.isor.is/ocean

Starfsfólk ÍSOR býður alla velkomna að heilsa upp á okkur, bæði til að spjalla í notalegu skrifstofurými eða líta á nýja sérhæfða efnarannsóknarstofu. Þá er aðstaða jarðhitaskóla GRÓ líka á 4. hæð og þar er líf og fjör, sérstaklega þegar 6 mánaða námskeiðin standa yfir.

Deila þessari grein
ÍSOR
Höfundur · ÍSOR

Ekki missa af neinu

Skráðu þig á fréttabréfið og fáðu nýjustu greinar í pósthólfið.