Hoppa í aðalefni
ÍSOR — Iceland GeoSurveyÍSOR — Iceland GeoSurvey

Fréttir

Forstöðumaður Jarðhitaskólans

ÍSOR · 6. ágúst 2024 · 1 mín. lestur

Forstöðumaður Jarðhitaskólans

Bjarni er jarðhitasérfræðingur með yfir 25 ára reynslu og hefur starfað hjá ÍSOR frá stofnun þess. Þar á undan var hann á Rannsóknarsviði Orkustofnunar. Hann hefur einnig unnið á öðrum sviðum…

Bjarni er jarðhitasérfræðingur með yfir 25 ára reynslu og hefur starfað hjá ÍSOR frá stofnun þess. Þar á undan var hann á Rannsóknarsviði Orkustofnunar. Hann hefur einnig unnið á öðrum sviðum jarðvísinda sem og verið í framkvæmdastjórn ÍSOR til margra ára. Guðni Axelsson jarðeðlisfræðingur, sem gegnt hefur stöðu forstöðumanns GRÓ-GTP frá 2019, hverfur nú til sinna fyrri starfa hjá ÍSOR.

GRÓ – Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu starfar undir merkjum UNESCO, Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, og hefur frá upphafi verið ein af helstu stoðum í íslenskri þróunarsamvinnu. Miðstöðin starfar á þeim sviðum þar sem Ísland hefur sérþekkingu sem getur nýst þróunarlöndum við að stuðla að framgangi heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.

Nánari upplýsingar um miðstöðina má finna á vef GRÓ www.grocentre.is

Deila þessari grein
ÍSOR
Höfundur · ÍSOR

Ekki missa af neinu

Skráðu þig á fréttabréfið og fáðu nýjustu greinar í pósthólfið.