Fréttir
Borholumælingar á Terceira-eyju
ÍSOR · 12. september 2022 · 1 mín. lestur

Azoreyjar eru níu eyja eldfjallaklasi á miðju Atlantshafi, beint vestur af Portúgal. Þrátt fyrir siglingar hinna og þessa snillinga frá örófi alda þá telst eyjaklasinn ekki hafa fundist fyrr en á…
Azoreyjar eru níu eyja eldfjallaklasi á miðju Atlantshafi, beint vestur af Portúgal. Þrátt fyrir siglingar hinna og þessa snillinga frá örófi alda þá telst eyjaklasinn ekki hafa fundist fyrr en á fyrri hluta 15. aldar, löngu eftir landnám á Íslandi. Þar búa um 250 þúsund manns, flestir á eynni San Miguel. Á Azoreyjum er m.a. blómleg nautgriparæktun og þar býr afburðagott kyn mjólkurkúa.
Á myndum má sjá jarðhitaborholur í góðum félagsskap við íbúa Terceira eyjarinnar og starfsmann ÍSOR að störfum.


