Hoppa í aðalefni
ÍSOR — Iceland GeoSurveyÍSOR — Iceland GeoSurvey

Fréttir

ÍSOR og Arctic Green Engineering Services (AGEN) hefja samstarf

ÍSOR · 30. september 2025 · 1 mín. lestur

ÍSOR og Arctic Green Engineering Services (AGEN) hefja samstarf

ÍSOR, sem auk fjölþættrar starfsemi á Íslandi veitir vísindalega og tæknilega ráðgjöf á sviði jarðvísinda á alþjóðamarkaði og  AGEN (Arctic Green Engineering Services)   alþjóðlegt ráðgjafarfyrirtæki með aðsetur í Ungverjalandi á sviði jarðvísinda, verkfræði, tæknilegrar þjónustu og nýsköpunar…

ÍSOR, sem auk fjölþættrar starfsemi á Íslandi veitir vísindalega og tæknilega ráðgjöf á sviði jarðvísinda á alþjóðamarkaði og AGEN (Arctic Green Engineering Services) alþjóðlegt ráðgjafarfyrirtæki með aðsetur í Ungverjalandi á sviði jarðvísinda, verkfræði, tæknilegrar þjónustu og nýsköpunar, hafa ákveðið að sameina krafta sína í þjónustu sinni innan jarðvarmaiðnaðarins, með áherslu á Evrópu.

Forsvarsmenn fyrirtækjanna tveggja telja að samstarf þeirra, sem felur í sér hæfa og reynslumikla ráðgjafarþjónustu, geti stutt við fyrirtæki og stjórnvöld í Evrópu við að nýta frekar jarðvarmaauðlindir sínar.

Á jarðvarmaráðstefnunni Budapest Geothermal Summit, sem haldin var í Búdapest 26. september, undirrituðu Árni Magnússon, forstjóri ÍSOR, og Gábor Molnár, framkvæmdastjóri AGEN, yfirlýsingu þess efnis.

Bæði fyrirtækin hafa áratuga reynslu í bæði jarðvísindum og verkfræði innan jarðvarmaiðnaðarins og iðnaðurinn ætti að njóta góðs af sameiginlegri þekkingu þeirra.

Samstarfið hefur þegar tryggt verkefni sem hefjast á næstu vikum.

Deila þessari grein
ÍSOR
Höfundur · ÍSOR

Ekki missa af neinu

Skráðu þig á fréttabréfið og fáðu nýjustu greinar í pósthólfið.