Hoppa í aðalefni
ÍSOR — Iceland GeoSurveyÍSOR — Iceland GeoSurvey

Fréttir

Öflug þátttaka ÍSOR á World Geothermal Congress í Calgary 2026

ÍSOR · 24. júní 2026 · 1 mín. lestur

Öflug þátttaka ÍSOR á World Geothermal Congress í Calgary 2026

ÍSOR tók virkan þátt í World Geothermal Congress 2026 sem haldin var í Calgary í Kanada dagana 8.–12. júní. Ráðstefnan er stærsti alþjóðlegi vettvangur fagfólks á sviði jarðhita og jarðvísinda og sækja hana helstu sérfræðingar og fulltrúar fyrirtækja og stofnana  víðs vegar að úr heiminum. Alls…

ÍSOR tók virkan þátt í World Geothermal Congress 2026 sem haldin var í Calgary í Kanada dagana 8.–12. júní. Ráðstefnan er stærsti alþjóðlegi vettvangur fagfólks á sviði jarðhita og jarðvísinda og sækja hana helstu sérfræðingar og fulltrúar fyrirtækja og stofnana  víðs vegar að úr heiminum. Alls tóku 16 starfsmenn ÍSOR þátt í ráðstefnunni í ár með erindum  allt frá vöktun til  sjálfbærrar nýtingar á sviði jarðvísinda, ásamt því að taka þátt í pallborðsumræðum.

Mikill áhugi var á skriðtengjum ÍSOR (flexible Coupling), sem er íslensk einkaleyfisvarin nýsköpun sem þróuð hefur verið til notkunar í háhitaborholum. Lausnin vakti mikla athygli meðal ráðstefnugesta og þótti skýrt dæmi um hvernig íslensk þekking og reynsla getur leitt til nýrra tæknilausna fyrir jarðhitaiðnaðinn.

Þátttaka ÍSOR á World Geothermal Congress 2026 var mikilvægt tækifæri til að miðla íslenskri þekkingu á alþjóðavettvangi, efla samstarf við sérfræðinga og samstarfsaðila um allan heim og fylgjast með nýjustu þróun á sviði jarðhita og jarðvísinda.

ÍSOR þakkar skipuleggjendum ráðstefnunnar og öllum þátttakendum fyrir fróðlegar umræður, verðmæt tengsl og ánægjulegt samstarf.

Eftirfarandi myndir eru af rokkstjörnunum okkar, ÍSOR teymið í action!

Deila þessari grein
ÍSOR
Höfundur · ÍSOR

Ekki missa af neinu

Skráðu þig á fréttabréfið og fáðu nýjustu greinar í pósthólfið.