Þjónusta
Rannsóknir og ráðgjöf
Heildstæð þjónusta í jarðvísindum — frá forrannsóknum til vöktunar og ráðgjafar.
Rannsóknir og ráðgjöf

Borholumælingar
Prófanir og mat á afköstum borholna útheimta ýmiskonar mælingar til að afla upplýsinga um einkenni borholna og afkastagetu þeirra og jafnframt um einkenni og eiginleika hvers jarðhitakerfis. Þetta á einnig við um örvun borholna sem miðar að því að auka afköst nýrra jafnt sem eldri vinnsluholna. Borholuprófanir eru lykilatriði við borun rannsóknarholna, vinnsluholna, viðhald borholna og skráningu upplýsinga um hvert jarðhitasvæði.
Lesa meira
Mat á jarðhitaforða
ÍSOR býr yfir áratugareynslu í að meta orkuforða jarðhitasvæða bæði við lág- og háhitakerfi á Íslandi sem og erlendis. Mat á stærð jarðhitakerfis felst í könnunum og rannsóknum til að ákvarða eðliseiginleika og orkuvinnslugetu viðkomandi jarðhitakerfis. Matið byggist á fyrirliggjandi gögnum á hverjum tíma, eða á hvaða stigi nýting kerfisins er. Gögn sem stuðst er við geta verið frá yfirborðsrannsóknum og rannsóknar- og vinnsluborunum auk vinnslugagna.
Lesa meira
Efnagreiningar
Sýnataka og efnagreiningar á vatni, gasi og jarðefnum eru meginsvið jarðefnaþjónustu ÍSOR. Við leggjum metnað í að tryggja viðskiptavinum örugga og faglega þjónustu og vinnum eftir alþjóðlegum stöðlum. Hjá ÍSOR starfar hópur efna-, jarðefna- og jarðfræðinga sem byggt hefur upp sérfræðiþekkingu í sýnatöku og efnagreiningum, einkum fyrir jarðhitaiðnaðinn á Íslandi.
Lesa meira
Jarðfræðikortlagning
ÍSOR sérhæfir sig í gerð ýmiskonar jarðfræðikorta, bæði af landi og hafsbotni. Í áratugi hafa sérfræðingar ÍSOR og forverar þess unnið að því að kortleggja jarðfræði Íslands og koma upplýsingunum fyrir á mismunandi gerðum af kortum.
Lesa meira
Vinnslueftirlit hitaveitna
ÍSOR býr yfir áratugareynslu í að meta orkuforða jarðhitasvæða bæði við lág- og háhitakerfi á Íslandi sem og erlendis. Mat á stærð jarðhitakerfis felst í könnunum og rannsóknum til að ákvarða eðliseiginleika og orkuvinnslugetu viðkomandi jarðhitakerfis. Matið byggist á fyrirliggjandi gögnum á hverjum tíma, eða á hvaða stigi nýting kerfisins er. Gögn sem stuðst er við geta verið frá yfirborðsrannsóknum og rannsóknar- og vinnsluborunum auk vinnslugagna.
Lesa meira
Grunnvatnsrannsóknir
Vatnsvernd og sjálfbær nýting vatnsauðlindarinnar er krafa nútímans. ÍSOR býr yfir sérþekkingu á þessu sviði. ÍSOR hefur veitt ráðgjöf um grunnvatn og grunnvatnsrannsóknir fyrir vatnsveitur, fiskeldisstöðvar og fyrirtæki sem framleiða flöskuvatn.
Lesa meira
Kolefnisförgun
Niðurdæling jarðhitavökva hefur verið stunduð um árabil á jarðhitasvæðum á Íslandi. Kostir fylgja slíkri niðurdælingu. Með því að dæla niður affallsvatni er komið í veg fyrir að lón eða lækir myndist á yfirborði. Niðurdæling getur einnig viðhaldið þrýstingi í jarðhitakerfum sem annars færi minnkandi með nýtingu.
Lesa meira
Forðamat og vinnslustýring
ÍSOR býr yfir áratugareynslu í að meta orkuforða jarðhitasvæða bæði við lág- og háhitakerfi á Íslandi sem og erlendis. Mat á stærð jarðhitakerfis felst í könnunum og rannsóknum til að ákvarða eðliseiginleika og orkuvinnslugetu viðkomandi jarðhitakerfis. Matið byggist á fyrirliggjandi gögnum á hverjum tíma, eða á hvaða stigi nýting kerfisins er. Gögn sem stuðst er við geta verið frá yfirborðsrannsóknum og rannsóknar- og vinnsluborunum auk vinnslugagna.
Lesa meira
Umhverfiseftirlit
Mat á umhverfisáhrifum er mikilvægur þáttur í hverju jarðhitaverkefni. Allt frá fyrstu áætlunum til þess tíma að virkjun er byggð þarf að huga að umhverfisþáttum.
Lesa meira
Kennsla og þjálfun
ÍSOR leggur metnað í að miðla af reynslu sinni og þekkingu. Sérfræðingar okkar hafa um áraraðir skipað meginhluta þess hóps sem kennir og þjálfar við Jarðhitaskólann (GRÓ GTP). Þjálfunarnámskeið og málstofur eru í boði um allan heim þar sem vísindamenn viðkomandi lands fá kennslu í jarðhitafræðum og jarðhitatækni.
Lesa meira
Mannvirkjajarðfræði
ÍSOR býr yfir mikilli reynslu í jarðvísindalegum mælingum við undirbúning og hönnun vega- og jarðganga. ÍSOR hefur tekið þátt í stærri jarðgangagerðum hér á landi, eins og Hvalfjarðargöngum, m.a. með jarðskjálftamælingum vegna “sub-seat” jarðgangagerðar.
Lesa meira
Hafsbotnsrannsóknir
Þekking á jarðfræði og umhverfi hafsbotnsins er forsenda fyrir skynsamlegri nýtingu auðlinda sem þar finnast. Dæmi um auðlindir á hafsbotni eru byggingarefni, málmar, jarðhiti og olíu- eða gaslindir.
Lesa meira
Yfirborðsrannsóknir
ÍSOR stundar ýmsar rannsóknir í tengslum við jarðhita, bæði hvað varðar háhita og lághita. Í þessu felast rannsóknir á jarð-, jarðeðlis- og jarðefnafræði.
Lesa meira
Landgrunnsmál
ÍSOR veitir stjórnvöldum vísindalega ráðgjöf vegna afmörkunar landgrunns Íslands. Um er að ræða rannsóknarvinnu, gagnaöflun og túlkun gagna. Sérfræðingar ÍSOR hafa tekið þátt í að kynna kröfur Íslendinga fyrir landgrunnsnefnd Sameinuðu þjóðanna. Jafnframt hefur ÍSOR veitt ráðgjöf í samningaviðræðum milli ríkja um skiptingu landgrunnssvæða. Ísland gerði tilkall til þriggja landgrunnssvæða utan 200 sjómílna. Samið var um Ægisdjúp í mars 2016 á grundvelli greinargerðar um landgrunn Íslands. Hin svæðin eru Reykjaneshryggur og Hatton-Rockall svæðið. Svæðin þrjú eru samtals rúmlega 1.400.000 km² að stærð, eða um fjórtánfalt landsvæði Íslands. Það eru verulegir hagsmunir fyrir Ísland í því að tryggja sem víðtækust landgrunnsréttindi, jafnvel þótt ekki sé enn að fullu ljóst hvaða auðlindir svæðin hafa að geyma.
Lesa meiraÞarftu sérfræðiráðgjöf fyrir verkefnið þitt?
Hafðu samband