Í þessu verkefni er sjónum beint að sjálfum jarðhitavökvanum og eðli hans. Reynt verður að finna lausnir á hinum ýmsu efnafræðivandamálum sem upp kunna að koma á vinnslustigum jarðhitans. Markmið verkefnisins er að auka skilvirkni í allri jarðhitastarfsemi og gera jarðhitavinnslu sem hagkvæmasta þannig að hægt verði að draga úr notkun á jarðefnaeldsneyti. Þáttur ÍSOR snýr einkum að því að athuga hvernig hægt er að taka efnasýni úr jarðhitavökva á miklu dýpi (3-5 km) þar sem hitastig og þrýstingur er mun meiri en áður hefur verið unnið með.
– Redefining geothermal fluid properties at extreme conditions
2020-2023
Samstarf og fjármögnun
Verkefnið er styrkt af rannsókna- og nýsköpunaráætlun Evrópusambandsins, Horizon 2020.
Þátttakendur ásamt ÍSOR: GFZ (Þýskaland) (umsjón), TU Delft (Holland), BRGM (Frakkland), UNINE (Swiss), IFE (Noregur), TNO (Holland), UKRI (Bretland), UNIM (Ungverjaland), IZtech (Tyrkland) EFG (Belgía), HI (Þýskaland), Landsvirkjun (Ísland) og PGF (Þýskaland). Alls þrjár rannsóknastofnanir, ein evrópsk samtök, fjórir háskólar og þrjú fyrirtæki)
Verkefnisstjóri ÍSOR: Steinþór Níelsson.
LinkedIn: reflect-project
Twitter: reflect_h2020
