Hoppa í aðalefni
ÍSOR — Iceland GeoSurveyÍSOR — Iceland GeoSurvey

Forðamat og vinnslustýring

ÍSOR býr yfir áratugareynslu í að meta orkuforða jarðhitasvæða bæði við lág- og háhitakerfi á Íslandi sem og erlendis. Mat á stærð jarðhitakerfis felst í könnunum og rannsóknum til að ákvarða eðliseiginleika og orkuvinnslugetu viðkomandi jarðhitakerfis. Matið byggist á fyrirliggjandi gögnum á hverjum tíma, eða á hvaða stigi nýting kerfisins er. Gögn sem stuðst er við geta verið frá yfirborðsrannsóknum og rannsóknar- og vinnsluborunum auk vinnslugagna.

Háhitaborhola á Hellisheiði. Ljósmynd: Elvar J. Eiríksson.
Háhitaborhola á Hellisheiði. Ljósmynd: Elvar J. Eiríksson.

Þjónusta ÍSOR

  • Hugmyndalíkan
  • Rúmmálsmat
  • Reiknilíkangerð af jarðhitakerfi
  • Mat á áhrifum niðurdælingar
  • Mat á orkuvinnslu
  • Mat á endingartíma jarðhitakerfa
Hafðu samband

Tengd verkefni

COMPASS – fóðrun og steypun djúpborhola
Í vinnslu2022

COMPASS – fóðrun og steypun djúpborhola

ON Power

Verkefnið fjallar um undirbúning að djúpborun og miðar að lausnum til að fóðringar þoli þá áraun sem verður þegar háhitaholur hitna upp. Það á meðal annars að gera með því að skoða steypingu með “foam-steypu” sem er létt og sveigjanleg steypa sem minnkar álag á fóðringuna. Þróuð verður aðferð við að hleypa af þrýstingi sem myndast milli fóðringa (ÍSOR), tæringarvörn með klöddun verður sérstaklega skoðuð og farið í tæringarprófanir á yfirborði og ofan í holu með mælivír (ÍSOR). Samþætt fóðringa-kerfi sem á að þola yfirkrítískar aðstæður (m.a. með notkun skriðtengja) verður prófað í tilraunum hjá SINTEF í Noregi sem annast líka hermun á borholum.

RESULT – efling jarðhitakerfa í þéttbýli
Lokið2020

RESULT – efling jarðhitakerfa í þéttbýli

TNO

Fyrir vistvænar borgir (mission horizon Europe) er búist við að jarðhiti verði nýttur víða í þéttbýli til upphitunar í stað jarðefnaeldsneytis. Jarðhitanýting í þéttbýli getur verið flókin – jafnvel þó að jarðhitakerfin séu tiltölulega vel þekkt. Meginmarkmiðið er að sýna fram á möguleika á aukningu um 30-100% af helstu jarðhitanýtingu til upphitunar í þéttbýli í norðurhluta ESB. RESULT nær þessu með því að beita 1) hagræðingaraðferðum og bora og læra aðferðir, 2) líkanareikningum og óvissumat, 3) nota bestu tæknina, 4) bestun á aðferðum við mismunandi aðstæður í Evrópu. Nýjungarnar verða 5) notaðar við hönnun og borun tvinnholna (doublet) í Hollandi.