Hoppa í aðalefni
ÍSOR — Iceland GeoSurveyÍSOR — Iceland GeoSurvey

Borholumælingar

Prófanir og mat á afköstum borholna útheimta ýmiskonar mælingar til að afla upplýsinga um einkenni borholna og afkastagetu þeirra og jafnframt um einkenni og eiginleika hvers jarðhitakerfis. Þetta á einnig við um örvun borholna sem miðar að því að auka afköst nýrra jafnt sem eldri vinnsluholna. Borholuprófanir eru lykilatriði við borun rannsóknarholna, vinnsluholna, viðhald borholna og skráningu upplýsinga um hvert jarðhitasvæði.

ÍSOR á mælingabíla, auk margháttaðs annars skráningarbúnaðar og tæki til að annast borholumælingar. ÍSOR hefur veitt þessa þjónustu á nær öllum lághita- og háhitakerfum landsins, og víða erlendis.

Þjónusta ÍSOR við prófanir og mat á jarðhitaholum

  • Borholumælingar
  • Örvun borholna
  • Afkastamælingar
  • Ástandsskoðun borholna
Hafðu samband

Tengd verkefni

COMPASS – fóðrun og steypun djúpborhola
Í vinnslu2022

COMPASS – fóðrun og steypun djúpborhola

ON Power

Verkefnið fjallar um undirbúning að djúpborun og miðar að lausnum til að fóðringar þoli þá áraun sem verður þegar háhitaholur hitna upp. Það á meðal annars að gera með því að skoða steypingu með “foam-steypu” sem er létt og sveigjanleg steypa sem minnkar álag á fóðringuna. Þróuð verður aðferð við að hleypa af þrýstingi sem myndast milli fóðringa (ÍSOR), tæringarvörn með klöddun verður sérstaklega skoðuð og farið í tæringarprófanir á yfirborði og ofan í holu með mælivír (ÍSOR). Samþætt fóðringa-kerfi sem á að þola yfirkrítískar aðstæður (m.a. með notkun skriðtengja) verður prófað í tilraunum hjá SINTEF í Noregi sem annast líka hermun á borholum.

RESULT – efling jarðhitakerfa í þéttbýli
Lokið2020

RESULT – efling jarðhitakerfa í þéttbýli

TNO

Fyrir vistvænar borgir (mission horizon Europe) er búist við að jarðhiti verði nýttur víða í þéttbýli til upphitunar í stað jarðefnaeldsneytis. Jarðhitanýting í þéttbýli getur verið flókin – jafnvel þó að jarðhitakerfin séu tiltölulega vel þekkt. Meginmarkmiðið er að sýna fram á möguleika á aukningu um 30-100% af helstu jarðhitanýtingu til upphitunar í þéttbýli í norðurhluta ESB. RESULT nær þessu með því að beita 1) hagræðingaraðferðum og bora og læra aðferðir, 2) líkanareikningum og óvissumat, 3) nota bestu tæknina, 4) bestun á aðferðum við mismunandi aðstæður í Evrópu. Nýjungarnar verða 5) notaðar við hönnun og borun tvinnholna (doublet) í Hollandi.