Hoppa í aðalefni
ÍSOR — Iceland GeoSurveyÍSOR — Iceland GeoSurvey

Efnagreiningar

Sýnataka og efnagreiningar á vatni, gasi og jarðefnum eru meginsvið jarðefnaþjónustu ÍSOR. Við leggjum metnað í að tryggja viðskiptavinum örugga og faglega þjónustu og vinnum eftir alþjóðlegum stöðlum. Hjá ÍSOR starfar hópur efna-, jarðefna- og jarðfræðinga sem byggt hefur upp sérfræðiþekkingu í sýnatöku og efnagreiningum, einkum fyrir jarðhitaiðnaðinn á Íslandi.

Rannsóknarstofa ÍSOR er vel tækjum búin til að efnagreina m.a. jarðhitavatn, kalt vatn, gas og gufu.
Rannsóknarstofa ÍSOR er vel tækjum búin til að efnagreina m.a. jarðhitavatn, kalt vatn, gas og gufu.

Efnagreiningar á jarðhitavökva geta gefið vísbendingar um líklegt hitastig í viðkomandi jarðhitakerfi, auk áhættumats fyrir útfellingar og tæringu. Efnagreiningar geta einnig gefið hugmyndir um suðuferla, streymisleiðir vökva og uppruna jarðhitavökvans.

Virkt efnaeftirlit með jarðhita- og grunnvatnskerfum er nauðsynlegt eigi að tryggja sjálfbæra nýtingu auðlindanna.

Efnagreiningar ÍSOR nýtast

  • jarðhitaiðnaðinum
  • hitaveitum
  • vatnsveitum
  • fiskeldi á landi
  • umhverfis- og mengunarrannsóknum
  • lyfjaiðnaðinum

Rannsóknarstofa ÍSOR er sérútbúin til efnagreininga

  • jarðhitavatn
  • kalt vatn (neysluvatn, grunnvatn og yfirborðsvatn)
  • jarðhitagas og -gufa
  • ferilefni í vatni og gufu
  • borsvarf
  • útfellingar og tæringarafurðir
  • berg
  • kristalbygging lyfjaefna

Efnagreiningartæki

Rannsóknarstofa ÍSOR er búin fullkomnum tækjum til efnagreininga. Eins er ÍSOR í góðu samstarfi við aðrar rannsóknarstofur í landinu sem og erlendis hvað tækjabúnað og þjónustugreiningar varðar, til dæmis fyrir snefilefni, næringarefni og lífræn efni í vatni og einnig samsætur (t.d. 2H, 13C og 18O).

  • Rafgaslitrófsmælir (ICP-OES) greinir málma og hálfmálma í vatnslausn (t.d Si, Na, K, Mg, Ca, Fe, B, Mn og Al).
  • Litrófsmælir er notaður til greininga á SiO2, NH3 og fleiri efnum.
  • Jónaskilja (IC) er notuð til mælinga á anjónum í vatni (F, Cl, Br, I, SO4, NO3).
  • Gasskilja með varmaleiðninema (GC-TCD) greinir magn gastegunda í sýnum frá jarðhitasvæðum en þær eru helstar N2, H2, O2, Ar, CH4, CO2 og H2S.
  • Gasskilja með rafeindagleypninema (GC-ECD) greinir magn flúorinnihaldandi gastegunda (SF6, PFC) sem notuð eru sem gufuferilefni á jarðhitasvæðum.
  • Vökvaskilja með flúrljómunarnema (HPLC-FLD) er notuð til að greina flúrljómandi naftalensambönd sem notuð eru í ferilefnaprófum.
  • Flúrljómunarmælir er notaður til greininga á flúrljómandi efnum svo sem flúoresceini og rhódamíni, einkum í tengslum við ferilefnapróf og rennslismælingar.
  • Röntgentæki (XRD). Til greininga á kristalgerð fastra efna, til dæmis útfellingum í lagnakerfum, steindum í bergi, leir í svarfi frá borholum, tæringarafurðum og ýmsu öðru.
  • Rafeindasmásjá (SEM), skoðar og greinir uppbyggingu og samsetningu útfellinga og annarra fastra efna. Tækið er staðsett hjá Tæknisetri.
  • Auk þess títratorar, leiðni- og pH-mælar og fleiri smærri efnagreiningatæki.
  • Rannsóknarstofa ÍSOR á að auki sérútbúinn sýnatökubíl með öllum búnaði til sýnatöku af jarðhitavökva og grunnvatni.

Gæðakröfur

Við viljum tryggja vönduð vinnubrögð og fagmennsku í allri okkar þjónustu, hvort sem er við sýnatöku eða efnagreiningar. Rannsóknastofa ÍSOR hefur ekki faggildingu skv. rannsóknarstofustaðlinum ISO-17025, en kröfur hans eru hafðar að leiðarljósi. Rannsóknastofan starfar eftir vottuðu gæðastjórnunarkerfi samkvæmt ISO-9001:2015.

Hafðu samband