Hoppa í aðalefni
ÍSOR — Iceland GeoSurveyÍSOR — Iceland GeoSurvey
Í vinnslu2022

GSEU – jarðfræðiþjónusta fyrir Evrópu

Viðskiptavinur: EuroGeoSurveys

Við stefnum að því að leggja okkar af mörkum til Græna sáttmála Evrópu, Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og markmiða Horizon Europe með þróun jarðfræðiþjónustu fyrir Evrópu, sem beinist að plánetunni sjálfri: jörðinni undir fótum okkar.

– A Geological Service for Europe

2022-2027

Um verkefnið

Að takast á við vandamál sem ná þvert á landamæri og á meginlandsskala krefst nýsköpunar, stöðlunar og samræmingar, sem og sameiginlegrar framtíðarsýnar.

Starfandi jarðfræðistofnanir, sem eru þjóðlegir vörsluaðilar jarðfræðilegra upplýsinga, hafa safnað gríðarlegum arfi gagna og upplýsinga sem erfitt er að sameina. Þetta verkefni heldur áfram því samræmingar- og stöðlunarstarfi sem hófst í fyrri verkefnum.

Við stefnum að því að skapa sameiginlega þjónustu sem getur stutt við hröðun orku- og loftslagsskipta, sem og aukinn samevrópskan slagkraft með samþættingu rannsóknaráætlana okkar, sem lykilskref til að auka magn og gæði þeirra niðurstaðna sem stefnt er að. Rauður þráður í verkefninu er nýsköpun í því hvernig upplýsingar um undirlagið eru settar fram, skipulagðar, myndgerðar, miðlaðar og lagaðar að þörfum fjölbreytts hóps notenda, og aðferðafræðin til að ná því.

Á grunni þess starfs sem unnið var í GeoERA-áætluninni munum við stækka og víkka starfið, ekki aðeins vísindalega heldur einnig með því að tengja innlenda hagsmunaaðila við netið, til að skapa stuðning og að lokum fá umboð fyrir varanlega evrópska þjónustu.

Samstarf og fjármögnun

Verkefnið er styrkt af rannsókna- og nýsköpunaráætlun Evrópusambandsins, Horizon 2020.

Þátttakendur ásamt ÍSOR: Alls 45 jarðfræðistofnanir í Evrópu. ÍSOR (Iceland GeoSurvey) er aðili að EuroGeoSurveys og NAG-hópi (North Atlantic Geological Surveys) og er fulltrúi Íslands í samstarfi jarðfræðistofnana í Evrópu.

Verkefnisstjóri ÍSOR: Steinunn Hauksdóttir.

Vefur verkefnisins