Hoppa í aðalefni
ÍSOR — Iceland GeoSurveyÍSOR — Iceland GeoSurvey
Í vinnslu2022

EPOS – innviðir fyrir jarðvárgögn

Viðskiptavinur: Veðurstofa Íslands

EPOS Ísland miðar að uppbyggingu rafrænna innviða á Íslandi í formi öflugra gagnaþjónusta, sem settar eru upp og þjónustaðar hjá Veðurstofu Íslands. Þjónusturnar eru beintengdar miðlægri gagnaþjónustu EPOS ERIC, sem veitir aðgengi að mikilvægum fjölþátta jarðvísindagögnum frá Íslandi og leyfir úrvinnslu og samtúlkun með alþjóðlegum jarðvísindagögnum sem þar eru.

– European Plate Observing System, Geohazard Exploitation Platform

2022-2027

Um verkefnið

Samstarfsaðilar vinna því að styrkja og byggja upp rafræna innviði og búa til þjónustur með það að markmiði að veita opið aðgengi fyrir alla að fjölþátta jarðvísinda og eldfjallagögnum og skapa þannig nýja möguleika á þverfaglegum vísindalegum rannsóknum sem taka til mismunandi sviða. Jafnframt er markmiðið að styrkja stöðu Íslands innan EPOS ERIC samtakanna og innan EPOS ERIC gagnaþjónusta og auðvelda aðgengi að og hlutdeild í evrópskum og öðrum erlendum rannsóknastyrkjum.

Samstarf og fjármögnun

Verkefnið er styrkt af Innviðasjóði RANNÍS

Þátttakendur ásamt ÍSOR: Veðurstofa Íslands (umsjón), landmælingar Íslands, Náttúrufræðistofnun og Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands.

Verkefnisstjóri ÍSOR: Ásdís Benediktsdóttir